Sveinspróf í snyrtigreinum
Sveinspróf í snyrtigreinum eru haldin a.m.k. einu á ári í hverri iðngrein ef næg þátttaka næst. Sveinsprófsnefnd ákveður prófdaga og próftökustað.
Smelltu á viðkomandi grein til að fá frekari upplýsingar:
Næsta próf í hársnyrtiiðn verður í sept og okt 2022. Bóklegt próf verður mánudaginn 19.september. Verklegt próf verður haldið í Tækniskólanum 1. og 2. október, í Hárakademíunni 8. og 9. október., á Akureyri 15.október. Umsóknarfrestur er til 5.ágúst 2022.
Umsækjandi þarf að framvísa staðfestum námssamningi og skila inn burtfararskírteini í hársnyrtiiðn. Lífeyrissjóðsyfirlit, til staðfestingar á vinnustaðanámi, þarf að fylgja umsókn.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Næsta sveinspróf í snyrtifræði verður 30.sept, bóklegt próf. 1. og 2. október 2022 verklegt próf. Umsóknarfrestur er til 15.ágúst 2022.
Umsækjandi þarf að framvísa staðfestum námssamningi, skila inn burtfararskírteini eða staðfestingu frá skóla um að hann ljúki námi á yfirstandandi önn og muni fá útgefið burtfararskírteini. Lífeyrissjóðsyfirlit, til staðfestingar á vinnustaðanámi, þarf að fylgja umsókn.
Þegar umsóknarfrestur er liðinn fær umsækjandi bréf með upplýsingum um prófstað, dagsetningu, leyfis- og efnisgjald þar sem það á við.
Allar frekari upplýsingar um sveinspróf í snyrtigreinum veitir Valdís Axfjörð í síma 590 6400 eða með því að senda tölvupóst á valdis(hjá)idan.is.