image description

Styrkir til vinnustaðanáms í Evrópu

Menntaáætlun ESB veitir iðnnemum og nýsveinum tækifæri til að afla sér reynslu og þekkingar innan síns fagsviðs í öðrum Evrópulöndum.

Um er að ræða dvöl til lengri eða skemmri tíma (lágmark 2 vikur) þar sem markmiðið er að kynnast nýju fólki og vinnubrögðum. Með þátttöku getur nemandi meðal annars aukið starfsmöguleika sína heima og erlendis.

Reynsla úr slíkum verkefnum gefur ferilskránni aukið vægi. Styrk upphæðir eru mismunandi á milli landa og taka mið af lengd dvalar.

Algengar spurningar

Styrkirnir eru annars vegar fyrir iðnnema við íslenska skóla til að taka hluta af vinnustaðanámi sínu hjá evrópsku fyrirtæki og er reynslan metin til styttingar á námstímanum. Hins vegar fyrir nýsveina á fyrsta ári eftir sveinspróf.

  • Austurríki
  • Belgía
  • Bretland
  • Danmörk
  • Finnland
  • Frakkland
  • Ítalía
  • Norður Írland
  • Noregur
  • Pólland
  • Spánn
  • Svíþjóð
  • Þýskaland
  • Matvæla- og veitingagreinar
  • Málm- og véltæknigreinar
  • Bíliðngreinar
  • Prent- og miðlunargreinar
  • Snyrtigreinar
  • Bygginga- og mannvirkjagreinar
  • Hönnunar- og handverksgreinar

Sótt er um styrkina með því að fylla út umsóknareyðublað hér á vefnum.

Iðan fræðslusetur leggur áherslu á gæði nema/nýsveinaskipta í Evrópu og er unnið eftir ákveðnum verklagsreglum sem eru settar af Erasmus+ og Euro Apprenticeship netverksins.

Hafðu samband við okkur í síma 590 6400 eða með tölvupósti á netfangið idan(hjá)idan.is og við aðstoðum þig við að efla þína færni!

EQAMOB merkið

 

EQAMOB merkið

 

 

EQAMOB merkið

 

“Finnlandsdvölin var frábær. Mjög áhugavert að fá að starfa við húsgagnasmíði í landi þar sem löng hefð er fyrir smíði húsgagna úr efnivið sem vex í nærumhverfinu.”Erna Ástþórsdóttir - Húsgagnasmíði
“Dvöl mín á Fäviken í Svíþjóð var skemmtileg og krefjandi upplifun sem óhætt er að segja hafi víkkað sjóndeildarhringinn á náminu til muna.”Atli Snær Rafnsson - Matreiðsla
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband