image description

Keppni matreiðslu- og framreiðslunema

Föstudaginn 14. janúar 2022 verður haldin keppni matreiðslu- og framreiðslunema. Skila þarf umsókn til Matvæla- og veitingasviðs Iðunnar. Umsóknarfrestur er til 10. janúar. Keppnin fer fram föstudaginn 14. janúar nk. kl. 10.30.

Keppnin í matreiðslu skiptist í tvo hluta:

  • skriflegt próf
  • verklegan hluta þar sem verkefnið er að matreiða klassískan forrétt og eftirrétt.

Keppnin í framreiðslu skiptist í:

  1. skriflegt próf, 
  2. blöndun drykkja – tveir drykkir
  3. kvöldverðaruppdekkning ásamt blómum, fjórir réttir fyrir tvo gesti
  4. fyrirskurður
  5. eldsteiking og 
  6. fjögur sérvettubrot

Keppendur hafa ekki aðgang að hjálpargögnum við úrlausn verkefna.

Tveir stigahæstu einstaklingarnir í matreiðslu og framreiðslu munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem verður haldin í Hótel- og matvælaskólanum 23. og 24. apríl 2022.

Keppnisréttur er bundinn við aldur. Keppendur mega ekki vera eldri en 23 ára þann 1. maí 2022 og skilyrt er að nemar séu á námssamningi í maí 2022.

Umsókn

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband