image description

Málmsuðudagurinn

Iðan fræðslusetur heldur málmsuðudaginn í samstarfi við Málmsuðufélag Íslands. Boðið verður upp á fyrirlestra um nýjungar í málmsuðu. Einnig verða íslenskir birgjar suðuvélaframleiðenda með kynningu og sýningu á helstu nýjungum í málmsuðu.

Málmsuðudagurinn verður haldinn í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs að Vatnagörðum 20 og er dagskrá frá 10.00 - 16.00.

Dagskrá

10.00 - Húsið opnar. Sýning á öllu því helsta nýjasta á sviði málmsuðu á Íslandi

13.00 - Tæknimaður frá Fronius kynnir nýjustu TIG suðuvélar frá Fronius

14.00 - Gústaf Adólf Hjaltason IEW „Af hverju í ósköpunum þurfum við að taka hæfnispróf"

Hægt verður að prófa helstu suðuvélar á sýningunni.

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband