image description

Vefnámskeið í bílgreinum

Iðan fræðslusetur býður upp á fjölda vefnámskeiða á öllum sviðum.

Nýtt

KIA rafbílar - Hvað er rafbíll og hvernig virkar hann??

Á þessu vefnámskeiði sem byggt er á efni frá KIA er farið yfir í stuttu máli öll helstu atriði sem tengjast uppbyggingu og virkni rafbíla. Einnig er farið yfir hleðslumál og öryggi ásamt algengum spurningum sem vakna upp hjá fólki sem er í hugleiðingum um að skipta yfir í rafbíl. Námskeiðið er í heildina 15 stutt mynbönd sem taka fyrir ákveðið málefni og útskýra með myndrænum hætti. Rafbílar KIA eru í forgrunni en margt af því sem kemur fram á einnig við rafbíla almennt og því í raun gagnlegt öllum þeim sem vilja fræðast nánar um rafbíla.

Nýtt

KIA - Rafvæðing Ceed

Stutt yfirferð á nýjum KIA CEED sem kemur nú í tengiltvinn útfærslu.

Betri rekstur verkstæðisins með aðferðum LEAN

Vilt þú læra hvernig auka má framleiðni og um leið bæta þjónustuna á verkstæðinu? Þá gæti þetta námskeið verið svarið fyrir þig. Þetta vefnámskeið er hluti af stærra námskeiði sem hefur verið í boði undanfarnar annir og er tilvalið tækifæri til að taka sín fyrstu skref í átt að hugmyndafræði LEAN

+ Fleiri námskeið
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband